Leita í fréttum mbl.is

Hrafninn minn

Mynd036Loksins sá ég auglýsinguna sem tekin var upp í fyrravetur en þar kemur litli kúturinn minn  fyrir... svo sætur að syngja í auglýsingu fyrir Lífís. Ótrúlegt en satt þá sá ég hana í hálfleiknum Ísland - Slóvakía... ég segi ótrúlegt því ég hangi yfirleitt ekki yfir boltanum, ó nei ég hef sko annað við tímann að gera. Whistling 

 

 

 

Flotttttastur!!!! InLove

lífís

 


Hver semur eiginlega stjörnuspánna mína???

Shocking 

LjónLjón: Þú veist hvað þú vilt fá, en þú kannt ekki hagnýtu aðferðirnar til að eignast það. Gerðu lista, rannsakaðu, gerðu plön. Með herkænsku kemur þetta auðveldlega.

Devil jæja þú sem semur, gefðu þig fram.....því þú hlýtur að þekkja mig VEL....... Whistling

Ætli þessar spár gildi jafn vel fyrir hin ljónin, pabba, Mæju pæju bjútí bjútí, Siggu og fleiri... mar bara spyr sig.

Á meðan ritstíflan varir á háu stigi þá set ég inn eina og eina viðeigandi stjörnuspár. Enda kvittar hvort eð er nánast engin CryingSleeping


Jahérna hér!!!

LjónLjón: Erfið manneskja hefur eitthvað fram að færa fyrir þig. Reyndu að leiða hjá þér furðulegan tjáningamátann og einbeittu þér að hjálplegu atriðunum.

 

HEFUR SJALDAN ÁTT EINS VEL VIÐ OG NÚ...!!!!!!!!!!!!!!!!Blush CryingCrying


Myndir

GrikklandEins og flestir vinir og kunningjar vita þá stundaði ég skiptinám eina önn í lagadeild í Aristotle University of Thessaloniki (http://www.auth.gr/home/index_en.html) í Grikklandi frá sept05 - feb06 ásamt Sólveigu Ösp (Hrafn sonur minn þá fjögurra ára var einnig með). Skelltum við nöfnurnar okkur á geggjaða tónleika með Morten HarketInLove ásamt AHA og get ég upplýst ykkur um að þetta voru magnað, þvílík stemning og brjálað fjör. Að sjálfsögðu lét ég öryggisverðina vita að við værum frá Íslandi og fengum við að fara á bakvið ásamt tveimur stelpum frá Englandi sem við vorum með. Cool 

 

Solveig og Sólveig Ösp

Flottur

:o)

 

 

 

 

 

 

Við stilltum okkur að sjálfsögðu upp fremst til að vera sem næstar goðinu Wizard

Ætla næstu daga að blogga um dvöl mína þar.


mbl.is Vinnur fyrir Morten Harket
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stjörnuspá 11.jan 08

LjónLjón: Mann langar í margt, en reyndu að langa í það sem þú á. Reyndu að endurmeta hlutina. Farðu yfir sambönd, valkosti og dótið þitt og ákveddu hvað sé þess virði að halda í.

 

Mér finnst ég alltaf vera að taka til í öllu hjá mér... en kannski ekki á réttu stöðunum.Shocking

Góða helgi Wizard


Stjörnuspá

Stjörnuspá

LjónLjón: Forgangsraðaðu og settu niður á blað. Kannski ertu að eyða tíma í eitthvað sem þér er sama um. Og það kemur niður á mikilvægum hlutum.
Og hana nú... Whistling

Ég skammast mín fyrir kynsystur mínar, þ.e.as femínistab........

Ósáttir við jólakort femínista

447532AFélag ábyrgra feðra á Akureyri hefur sent Jafnréttisstofu kvörtun vegna jólakorts sem Femínistafélag Íslands hefur gefið út. Jólakortið sýnir mynd af jólasveininum Askasleiki sem heldur á spjaldi sem á stendur „Askasleikir óskar sér þess að karlar hætti að nauðga" . Jólakortið er látið líta svo út að barn hafi teiknað það, að því er segir í tilkynningu frá félaginu.

Félagið telur að jólakortið sé einstaklega ósmekklegt og það megi lesa út úr kortinu að allir karlar séu nauðgarar og aldrei megi tengja hátíð barnanna við nauðganir. Félagið íhugar einnig að leggja fram kæru vegna útgáfu kortsins, að því er segir í tilkynningu.

 Tekið af www.mbl.is þann 21.12.2007.

 

Er hægt að leggjast lægra en að senda þennan ósmekklega "boðskap" frá sér. Ekki fæ ég jólakort frá þeim, sem betur fer segi ég nú bara. Ég er svo yfir mig hneiksluð og reið að ég er orðlaus og þegar það gerist þá er best að þegja því ekki vil ég setja eitthvað á prent sem ég gæti séð eftir.

En Guð minn góður, eru þær orðnar snarbilaðri en vanalega?? Ojjj barasta.

Nú spyr ég, HVER HANNAÐI KORTIÐ????? Ætli barnið sem teiknaði myndina hafi vitneskju um og hafi gefið samþykki fyrir því á hvaða hátt myndin sem það teiknaði hafi verið notað? Það er að segja ef barn var fengið til þess.

Það er ekki skrítið að ekki sé hægt að blogga við þessa frétt, það brennur allt yfir í bloggheimi í dag.

Ojj barasta enn og aftur femínistar, skammist ykkar.


Ég elska þig Palli!!

sætastur

 

 

 

 

 

 Heart

sætust

í gær varð ég 15 ára aftur!!!! InLove

Cool


Suðurlandsvegur

big-SuurlandsvegurjpgFjórir hafa látist í umferðarslysum á Suðurlandsvegi milli Reykjavíkur og Selfoss það sem af er þessu ári. Samkvæmt upplýsingum frá Umferðarstofu er fjöldi banaslysa á Suðurlandsvegi nú í ár langt yfir meðaltali. Þar verða að meðaltali 1,2 banaslys á ári, en þau eru nú sem fyrr segir orðin fjögur talsins. Hlutfall þeirra sem hafa látist í umferðarslysum á Suðurlandsvegi af heildarfjölda þeirra sem látist hafa í bílslysum í ár er 28,8%. Hlutfallið er vanalega um 5%. Þessi texti er tekin af www.dv.is

Í fyrradag var ég á leið til Reykjavíkur um fjögurleitið sem er í sjálfu sér ekki í frásögu færandi, nema þegar nær dregur borginni eykst hálkan og ég ek hægar. Ég stoppa í Litlu kaffistofunni eins og svo oft til að kaupa sykraðar pönnsur handa Hrafninum mínum sem sat rólegur aftur í. Þarna inni var um leið og ég ökumaður söltunarbíls og þar sem verið er að tala um að hálkan, slabbið og snjórin aukist því sem nær dregur borginni þá ákveð ég að blanda mér inn í umræðuna og segi í leiðinni að ég sé að fara einmitt í bæinn að láta setja nagladekkin undir (sem b.t.w voru í bænum) ég sé á nýlegum heilársdekkjum að framan en slitnum að aftan. Bílstjórinn var svo elskulegur og sagði, ég skal bara keyra á undan þér, sem hann og gerir. Bilið milli okkar voru nokkur hundruð metrar og alltaf eykst slabbið og hálkan, fyrir utan að það snjóaði líka heilan helling og birtan úti var erfið, því var svona hvorki dimmt né bjart. Ég vil taka það fram að ég ek um á Peugeot 206, 1999 árgerð. 

Á Sandskeiðinu sé ég að það nálgast mig hratt STÓR FLUTNINGABÍLL að mér sýndist malarflutningarbíll, hann er komin alveg í rassgatið á mér og byrjar að blikka ljósunum. Ég hugsa með mér að þetta hljóti að vera einhver sem ég þekki því hann blikkar mig af og til, þarna er ég á ca 60 km hraða sem stundum fór niður í 50 km, sem sagt keyri miðað við aðstæður. Ekki hefði verið séns fyrir mig að fara út í kant því þar var þykkur slabbkantur. Hann heldur áfram að blikka mig og það fer að renna upp fyrir mér að hann er líklegast að reka á eftir mér. Ég finn að ég stressast upp og það vita þeir sem mig þekkja að mikið þarf til að það gerist í akstri því ég keyri fleiri tugaþúsunda kílómetra á ári.

Jæja áfram með söguna, bilið á milli mín og söltunarbílsins var það mikið að fjöldamargir flutningabílar hefðu komist á milli því það dró í sundur með okkur. Fíflíð sem var fyrir aftan mig var nú byrjaður að flauta á mig og blikkaði eins og ætti lífið að leysa, ég ákvað nú að hægja enn meira á mér enda jókst bara snjórinn á veginum og einnig snjókoman þannig að ég sá mjög illa út. Sonur minn litli var að reyna að sjá númerið á bílnum en það tókst ekki því miður, en hann var ekki síður stressaður en ég með þetta skrímsli í rassgatinu á okkur og ljósin blikkandi stöðugt auk þess að hann flautaði á okkur. Svona gekk þetta alla leiðina upp að hringtorgi við Rauðavatn en þá beygði fíflið inn á Breiðholtsleiðina en ég hélt áfram niður í bæ titrandi og skjálfandi, bæði af hræðslu og reiði. Ég dauðsé eftir að hafa ekki elt hann, tekið niður númerið og sparkað í hann þegar hann kæmi út úr bílnum, því ef ég hef einhverntímann á ævinni viljað lúskra á einhverjum þá er það þessi ökufantur. Helvítis fífl sem hann er.

Þarna hefði ég auðveldlega getað panikað það mikið að ég hefði misst stjórn á bílnum því með hann alveg í rassgatinu og mæta öðrum bílum og trukkum í þessu skyggni og færð allaleið af Sandskeiðinu. Af hverju tók þetta &%(/%($(%$&... ekki bara framúr mér því hann hafði mörg tækifæri til þess, til þess var ég m.a að hægja aðeins á mér.

Stundum getur maður verið að blóta ökumönnum fyrir að keyra of hægt og hleypa manni ekki framúr ásamt fleiru, en í dag er ég oft farin að hugsa hverjar geta aðstæður viðkomandi verið? Gæti verið að þetta sé fyrsti ökutúrinn eftir útafkeyrslu eða slyss sem hann hefur lent í, jafnvel dauðaslys og viðkomandi smeykur. Aðgát skal höfð í nærveru sálar svo mikið er víst.

Ef þú lest þetta bílstjóri máttu vita að þú ert algjört fífl að stofna lífi mínu og 6 ára sonar míns í hættu með atferli þínu. Ef ég myndi ná í þig þá máttu vita að ég er ennþá það reið að ég myndi sparka í sköflunginn á þér. Þið flutningabílstjórar getið verið kaldir því slasist sjaldnast líkamlega á þessari leið. Þetta á ekki við um alla, heldur taki þeir til sín sem eiga, þið sem svínið fyrir mann án þess svo mikið að gefa séns með þvi að fara alveg útí kantinn.

Ég man hvernig bíllinn lítur út því hann var hvítur að framan, með gráan tengivagn og fremst á hliðinni á vagninum var hvít auglýsing á að mér sýndist sem var strengt yfir, efst á fremri hlutanum. Ég sá ekki hvað stóð því við vorum að reyna að sjá þetta þegar hann fór út úr hringtorginu.

Tvöföldum Suðurlandsveginn og það strax, það eru farin of mörg mannslíf á þessari leið. Þú veist aldrei hver er næstur..............................................!!!!!!!!!!!!!

 


Hvaða rugl er þetta?

KrummiAð hún hafi lagt fram fyrirspurn til núverandi heilbrigðisráðherra finnst mér ekki lýsa miklum gáfum "háttvirts" þingmanns / þingkonu (langar mig þó að benda á að konur eru líka menn)

Litavalið segir sig bara sjálft en þessar feministabxxxxx eru algjörlega að missa sig í jafnréttisbaráttu sinni. Sé ég enga ástæðu til að breyta þessari áratuga hefð. Ég sé fyrir mér hvíta veggi, hvítklætt starfsfólk, hvít sængurver, hvítar innréttingar og nú vill hún breyta einu litunum sem nánast fyrirfinnast á sjúkrahúsum... í hvað? Hvítt þá??

Eignist ég fleiri börn þá vel ég takk fyrir, bleikt eða blátt teppi, bleikt eða blátt armband, bleik eða blá föt á krílið mitt.

Þvílíka bullið og þetta er maður að borga fyrir. Er ekkert annað sem er nauðsynlegra? Shocking


mbl.is Ekki meira blátt og bleikt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Solveig Pálmadóttir
Solveig Pálmadóttir
Business-legally-blond og rekur ferðaþjónustufyrirtækið Óbyggðaferðir ehf ásamt Unnari Garðarssyni. Viðskiptalögfræðingur frá Háskólanum á Bifröst 2006. Einnig hárgreiðslumeistari og þriggja/fjögurra stráka móðir og hundaeigandi.

32 dagar til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband