19.9.2008 | 21:57
Vinkonur!
Ég set inn fleiri myndir á síðasta blogg á næstu dögum, mikið að gerast þessa helgi. Hrafninn í söngskóla Maríu Bjarkar á morgun. GK kemur heim frá Florida snemma á sunnudagsmorgun. Á fimmtudaginn eru svo réttirnar okkar í Áfangagili á Rangárvöllum, mamma og pabbi voru að fara á fjall í dag og ég er að deyja úr áhyggjum því veðurspáin er ekki svo góð, mér þykir alltof seint farið á fjall. Í fyrra snjóaði á þau, lentu í blindaþoku og leiðindaveðri. Langar samt að renna uppeftir þegar þau verða komin í Landmannahelli en þar eiga mamma og pabbi hús sem þau munu gista í.
Húsið fjær á myndinni
Langar að setja inn eina gamla sæta mynd af okkur Hrafni sem tekin er í júlí 2001 á Hellisheiði Eystri, en þar var snjór og sól. Geggjað veður!
Hér er ein sem tekin er að Hrafni 3 ára á Bifröst, held að ljósmyndarinn hafi heitið Atli Rafn og sé frá Reykjanesbæ
Eigið góða nótt! Set bráðum inn myndir af stóru strákunum mínum líka
Eldri færslur
- Júlí 2011
- Október 2010
- Apríl 2010
- Júní 2009
- Apríl 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.