Leita í fréttum mbl.is

Mottó skrílsins

Skríllinn kallaði úðann yfir sig sjálf, brjótandi rúður og ráðast inn í fyrrverandi afgreiðsluinngang lögreglunnar. Við hverju bjuggust þau? Ætluðu þau að brjótast upp í fangageymslur og frelsa þann athyglissjúka?

Lögreglan reynir að stoppa skrílinn sem er að eyðileggja "fyrir hinum einu sönnu" mótmælendum. Er þetta ekki sama fólkið og klifraði upp í byggingakranana hjá Alcoa á Reyðarfirði og Kárahnjúkavirkjunum, lagðist fyrir framan vinnuvélar og hlekkjaði sig við vinnutæki... en fuku svo burt af Hellisheiðinni áður en ringdu í kaf. Ég bara spyr Whistling 

Þau grey sem standa fyrir mestu skrílslátunum eru ekki að gera neitt fyrir þjóðina, þeirra mottó virðist vera að ráðast sem mest gegn lögreglu og grenja síðan af því að "löggan beitti valdaníðslu" og væla í fjölmiðlunum. Sem betur fer eru þetta bara örfáir einstaklingar.

Ég mæli með að sá athyglissjúki verði handtekin fyrir næstu mótmæli og fluttur upp á hálendið í gám frá Eimskip, þá flykkist skríllinn þangað og við hin þessi normal getum mótmælt málefnanlega og í friði.


mbl.is Mótmæli við lögreglustöðina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bara Steini

400-500 manns eru ekki örfáir einstaklingar......

Bara Steini, 23.11.2008 kl. 00:55

2 Smámynd: Solveig Pálmadóttir

Hvað telur þú marga hafa verið stadda þarna fyrir forvitnissakir eða bara átt leið hjá, ég veit um nokkra. Hvað voru margir sem espuðust upp og brutu rúður og fóru inn? Það voru ekki 4-500 manns.  Enda er ekkert að marka þær tölur sem birtast í fjölmiðlum sem fannst það vera aðalfrétt dagsins þessi aumkunarverðu mótmæli við lögreglustöðina þegar fólk var á göngu á leið heim til sín, en ekki þau 7000 sem stóðu fyrir hinum einu sönnu mótmælum. Skríllinn telur örfáa sem telja sig til anarkisma. Mótmæla bara til að mótmæla, ekki af hugsjón heldur athyglissýki, svo ég taki undir orð Baldurs sem kommentaði á síðustu færslu.

Solveig Pálmadóttir, 23.11.2008 kl. 01:10

3 Smámynd: Bara Steini

Nákvæmlega sama með austurvöll..... Nokkrir grýttu alþingi ekki allir....

Fjöldinn var samt svona mikill.

Bara Steini, 23.11.2008 kl. 01:11

4 Smámynd: Viðar Freyr Guðmundsson

Sýnir bara hvað mótmælendur kynna sér málin vel áður en þeir æða af stað með skilti niður í bæ...

Viðar Freyr Guðmundsson, 23.11.2008 kl. 03:37

5 identicon

Fullkomlega sammála Sólveig

Pétur Marel Gestsson (IP-tala skráð) 23.11.2008 kl. 04:40

6 identicon

Þetta var einmitt fólk að mótmæla af hugsjón.  Það er svo slæmt að fólk afskrifi náttúruverndarsinna og anarkista sem athyglissjúklinga.  Það sást best á viðtalinu sem tekið var við mótmælandann þegar honum var sleppt úr haldi að hann var alls ekkert athyglissjúkur og vildi frekar að fólk eyddi orku sinni í að berjast fyrir byltingu heldur en hann. Þú þarft að kynna þér málið betur.

http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/11/23/var_ekki_latinn_vita/

http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/11/23/engin_lagaheimild_fyrir_handtoku/

Og þeir sem stóðu fyrir utan á meðan sumir ruddust inn hrópuðu samt áfram og studdu þá, það voru að minnsta kosti 400-500 manns sem tóku þátt.  Þetta voru vissulega ófriðsamleg mótmæli, en þau virkuðu.  Ekki vera hrædd við róttækni, það er slæmt að vera dofinn og "normal".

Guðrún (IP-tala skráð) 24.11.2008 kl. 18:05

7 Smámynd: Solveig Pálmadóttir

Sem betur fer man ég ekki eftir því að hafa nokkurn tímann verið talin "normal" og dofin hef ég nú aldrei verið, nema síður sé.. kannski frekar háð mér að vera vakandi og með athyglina í ofurlagi

Stærsti hluti þessa 400 manns sem stoppuðu við lögreglustöðina átti leið framhjá á heimleið

Eigðu góðan og friðsaman dag framundan Guðrún, það ætla ég að gera

Solveig Pálmadóttir, 24.11.2008 kl. 22:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Solveig Pálmadóttir
Solveig Pálmadóttir
Business-legally-blond og rekur ferðaþjónustufyrirtækið Óbyggðaferðir ehf ásamt Unnari Garðarssyni. Viðskiptalögfræðingur frá Háskólanum á Bifröst 2006. Einnig hárgreiðslumeistari og þriggja/fjögurra stráka móðir og hundaeigandi.

245 dagar til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband