Leita í fréttum mbl.is

ósmekklegt!!

Ég ákvað að setja hér inn komment sem ég ritaði á bloggið hjá ágætum manni, Eyþóri nokkrum Arnalds. Ég gat ekki orða/skrifa bundist þar sem ég var jafnhneyksluð og hann á ákveðnu máli... umræðuefnið er fermingarbæklingurinn frá Smáralind og þau ósmekklegu og ógeðfelldu skrif á bloggsíðu dr.Kolbeins, þó þau ummæli hafi verið fjarlægð af upphaflegri síðu er skaðinn skeður og verður ekki aftur tekin. Menn halda því fram að hún sjái eftir skrifum sínum og iðrist, þess vegna hafi hún fjarlægt grein sína, ég hef bara hvergi séð það koma fram frá henni að hún hafi gert mistök.  Menn eru að verja skrifa hennar fyrir pólítíkina og koma einhversskonar sök óbeint yfir á Eyþór því hann birtir þessi ógeðfeldu skrif hennar á sinni síðu. Kannski þeir menn séu flokksbræður dr.Kolbeins - hvur veit? Ég get ekki með nokkru móti lesið KLÁM út úr þessari mynd.. er allt orðið klám í dag? Má ég ekki fara út í búð á háhæluðum skónum mínum og beygja mig eftir barninu mínu - er það klám? Ja-hvur veit!! Mér finnst hreinlega eins og allt sé að verða vitlaust á þessu litla landi okkar.

Hér kemur pistillinn minn:

 

Ég held að sá ágæti doktor sem ritar þessa grein ætti að hafa í heiðri og virða ágætan málshátt sem hljóðar svo -Aðgát skal höfð í nærveru sálar-

Væri ég foreldri þessarar ungu stúlku sem um ræðir, væri ég búin að leita lögfræðingsálits og ath rétt hennar. Þetta er ung stúlka á viðkvæmum aldri, að vinna sína vinnu að sitja fyrir í auglýsingu fyrir Smáralind, sem eflaust henni hefur þótt spennandi og skemmtilegt.

Síðan kemur einhver feministabelja (eins og Bo segir í textanum) og lætur út úr sér þvílíkt viðbjóðslega samlíkingu -Á forsíðunni má sjá unga stúlku á háum hælum í velþekktri stellingu úr klámmyndum. Hún er tilbúin til þess að láta taka sig aftan frá. Með munninn opinn býður hún lesendum af karlkyni að setja skaufa sína upp í sig.

Þetta lýsir best hugarórum þess einstaklings sem ritar svona draumórakennda setningu, allavega hef ég ekki þetta hugmyndarflug, né langanir. Frá mínum bæjardyrum séð sé ég ekkert athugavert þó á þessari auglýsingu sé stúlkan að beygja sig eftir bangsa og jú, ungar stúlkur ganga líka í háhæluðum skóm.

Það skyldi þó ekki vera að einstaklingar sem hugsi á þennan hátt og sjái kynferðislegt út úr hverji stellingu séu í kynlífssvelti - maður spyr sig!

 

Sofið rótt


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Didda

Svo sammála, kannski á hún sér draum

Didda, 9.3.2007 kl. 00:56

2 identicon

Flottur pistill hjá þér Solveig - algjörlega sammála. Ég styð það að þessi pistill Guðbjargar verði ínáanlegur á sem flestum stöðum þar til alla vega almennileg afsökunarbeiðni hefur komið frá Guðbjörgu. 

Skaðinn er skeður, eins og þú segir ...

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 9.3.2007 kl. 02:01

3 identicon

  1. Hæ hæ! Takk fyrir síðast. Já ég er sammála þér með þessi skrif Guðbjargar feminista.Hún er alltof gróf í þessu. Ég er nú samt feministi enn þetta er alltof langt gengið.  Annars finnst mér að mætti ræða aðeins þessi mál varðandi ungar stúlkur. Mér finnst alltof algengt að börn séu í fötum sem hæfa ekki þeirra aldri, t.d g streng, flegnum bolum og þess háttar. Verðum aðeins að spá í þetta.  Gæti þetta hugsanlega ítt undir kynferðislega áreitni gagnvart börnum,þar sem það er jú svo óhugnalega algengt. kv Sólveig

Sólveig Eyrarbakka (IP-tala skráð) 13.3.2007 kl. 22:45

4 Smámynd: Solveig Pálmadóttir

ó já ég áskil mér ALLAN rétt til að eyða út commentum sem skrifuð eru í nafnleynd

ef fólk getur ekki komið fram undir nafni þannig að hægt sé að svara fyrir sig, þá nenni ég nú ekki að púkka upp á það lið.

Solveig Pálmadóttir, 17.3.2007 kl. 11:14

5 identicon

Ehem... sé að þú hefur eytt út mínu kommenti, en ég skrifaði undir það með nafni... svo þú ritskoður nú fleira heldur en nafnleynd...

Ásta Hrönn (IP-tala skráð) 17.3.2007 kl. 19:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Solveig Pálmadóttir
Solveig Pálmadóttir
Business-legally-blond og rekur ferðaþjónustufyrirtækið Óbyggðaferðir ehf ásamt Unnari Garðarssyni. Viðskiptalögfræðingur frá Háskólanum á Bifröst 2006. Einnig hárgreiðslumeistari og þriggja/fjögurra stráka móðir og hundaeigandi.

243 dagar til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband