Leita í fréttum mbl.is

Ferming

. 021Síðastliðin sunnudag áttum við fjölskyldan yndislegan dag. Þann dag fermdist Hannes sonur minn í Skarðsirkju í Landssveit. Séra Halldóra sá um athöfnina en auk hans fermdust Vésteinn yngsti sonur Halldóru og Hjörvar systursonur hennar búsettur á Ísafirði.

 

Við héldum veisluna í Brúarlundi sem var fallega skreyttur af okkur og svignuðu borð undan kræsingum sem framleidd voru af mér, pabbanum, mömmu, Sibbu ömmu fermingabarnsins, vinkonum mínum og lagtertan var frá ömmu minni. Kransakakan var frá Jóa Fel og var hún alveg meiriháttar, bragðgóð og falleg, einnig pantaði ég snjóhvítt marsipan hjá honum sem kom virkilega vel út á sjálfri fermingakökunni sem vinkonur mínar bökuðu og ég hjálpaði svo til við að skreyta og skrifa á. Ég ákvað að hafa núgatfrómas sem kom mjög vel út.

 . 001

Hannes minn stóð sig mjög vel, var ófeimin og kurteis. Ég er ekki frá því að hann hafi nú elst og þroskast dálítið þennan dag J  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir

Þetta var frábær dagur í alla staði fyrir okkur sem stóðum að fermingarbörnunum.

 Og þeir voru svo sannarlega fallegir þessir þrír - báru sig vel og mannalega, fóru skýrt og skorinort með orðin sín við altarið.

Myndarstrákur hann Hannes. Hjartanlegar hamingjuóskir með drenginn.

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 7.5.2008 kl. 22:39

2 Smámynd: Helga Auðunsdóttir

Til hamingju með strákinn.

Helga Auðunsdóttir, 9.5.2008 kl. 07:27

3 identicon

Til hamingju með strákinn.

Hafdís (IP-tala skráð) 13.5.2008 kl. 15:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Solveig Pálmadóttir
Solveig Pálmadóttir
Business-legally-blond og rekur ferðaþjónustufyrirtækið Óbyggðaferðir ehf ásamt Unnari Garðarssyni. Viðskiptalögfræðingur frá Háskólanum á Bifröst 2006. Einnig hárgreiðslumeistari og þriggja/fjögurra stráka móðir og hundaeigandi.

271 dagur til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband